Ţjónusta

  Símaverið ehf er fyrirtæki sem leggur metnað sinn í að starfa með fyrirtækjum og einstaklingum sem eru opnir fyrir hagræðingum og eru sífellt að leita leiða til að ná hagkvæmni í sínum rekstri.  Við bjóðum upp á lausnir sem geta leitt til aukinnar framlegðar og jafnframt stuðlað að auknu þjónustustigi fyrirtækja og einstaklinga við viðskiptavini sína.


Þjónusta Símaversins er:

  • Að annast símsvörun fyrir fyrirtæki
  • Símasala
  • Kynna vöru og þjónustu og bóka kynningarfundi.
  • Fylgja eftir markpósti.
  • Önnur þjónusta sérsniðin að óskum viðskiptavina.

Kostir þess að nýta þjónustu Símaversins.

  • Kostnaðahagræðing
  • Betri og jafnari þjónusta við viðskiptavini.
  • Betri svörunarárangur á álagstímum.
  • Lágmörkun í starfsmannahaldi og takmarka ábyrgð og skuldbindingar sem því fylgir.
  • Lækka kostnað vegna tækjabúnaðar.

Undirbúningsvinna í samvinnu við viðskiptavini


Símaverið býður skjóta svörun sem er sniðin að óskum viðskiptavinar.  Má þar nefna að minnka álag á símakerfi viðskiptavinar og/eða tekið að okkur að svara öllum símtölum sem berast og er þá símasvörun viðskiptavinar alfarið í höndum þjálfaðra starfsmanna Símaversins.


Þjónustan byggir á handbók sem unnin er í samráði við viðskiptavini sem:

  • Leggja línur varðandi aðgang að sínu starfsfólki og hvernig upplýsingar eru sendar til hans, sem getur t.d. verið í gegnum viðverukerfi sem er til staðar hjá verkkaupa eða í gegnum tölvupóst eða með sms sendingum.
  • Þekking á starfsemi viðkomandi fyrirtækis, fer eftir þjónustu sem látin er í té.
  • Öll þekking kemur frá viðskiptavinum og er skráð þannig að allir geta svarað fyrir þá með því að slá upp upplýsingum í gagnabanka.

Yfirleitt er ekki verið að útskýra tæknilega hluti heldur er um símsvörun að ræða